Jæja drengir, flott æfing í kvöld og frábært að fá u.flokks strákana inn til þess að berja aðeins á ykkur. Vona að við náum að æfa svona amk. 2x í viku.
Langar svo að benda á nýjan link á síðunni til hliðar en þar getið þið séð leikjayfirlit allra flokka Vals í vetur. Þessi linkur var settur sérstaklega að beiðni Bensa;)
Varðandi framhaldið þá er það svona:
Fimmtudagur: Æfing kl. 20:00-21:40
Föstudagur: Lyftingaræfing kl. 16:00. Ég verð ekki á svæðinu og ykkur er í raun frjálst að mæta hvenær sem er á föstudeginum. Það er engu að síður skyldumæting!
Laugardagur: Æfing 16:10-17:40. Sjálfur verð ég á Egilsstöðum þannig að ég reyni að útvega þjálfara fyrir æfinguna.
Sunnudagur: Leikur gegn KR í DHL kl. 14:00. Mæting amk. klukkutíma fyrir leik. Ég verð ekki kominn heim frá Egilsstöðum en Yngvi ætlar að stjórna ykkur í þessum leik
Thursday, October 15, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment