Æfingin hefur verið færð til kl. 13:00 í sal 3.
Æfingatími fyrir miðvikudag verður tilkynntur á æfingu á morgun.
Þeir sem ekki mættu í dag án þess að láta mig vita, hlaupa 20 línuhlaup á næstu æfingu.
Héðan í frá mun ég halda þessum viðmiðum:
Skróp á æfingu=20 línuhlaup
Fyrir hverjar 2 mínútur sem þið mætið seint=1 línuhlaup (aldrei fleiri en 20)
Ef þið biðjið um frí á æfingu þá verður að vera góð ástæða til þess. Afsakanir eins og matarboð, lærdómur eða ferðalög eru ekki tekin gild.
Leikmenn skulu tilkynna um fjarvist í það minnsta 3 klukkustundum fyrir settan æfingatíma. Að öðru leyti verður fjarvistin skráð sem skróp.
Eysteinn og Freddi eru fjarverandi vegna búsetu annarsstaðar í jólafríinu og verður það tekið gilt.
Stefán og Frikki mættu ekki í dag án útskýringa og því taka þeir 20 línuhlaup á æfingunni á morgun. Hjálmar hefur ekki útskýrt fjarvist sína.
Monday, December 14, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Ég er ennþá frekar veikur, en ætla að reyna að mæta á morgun.
ReplyDeleteKv. Hjálmar