Wednesday, October 28, 2009

Leikur á föstudag

Leikur gegn KFÍ í 11. flokki á föstudag strax að loknum leik Vals og KFÍ í meistaraflokki.
Leikurinn ætti að byrja ca. 21:30/21:45.
Eins og þið vitið þá er þetta algjör úrslitaleikur um að halda okkur uppi í B-riðli og því er mikilvægt að við eigum góðar æfingar fram að leiknum. Æfingar verða samkvæmt æfingatöflu. Engin lyftingaæfing fyrir 11. flokkinn á föstudaginn.
Varðandi laugardaginn þá verður æfingatími eitthvað breyttur, læt ykkur vita nánar þegar líður á vikuna.

Á æfingu á miðvikudag/fimmtudag mun ég láta ykkur gera ákveðið frammistöðumat á ykkur og mér og mun ég notast við þetta öðru hverju í vetur.
Good times!

Wednesday, October 21, 2009

Minnum á rafræna Reykjavík

Nú á að vera búið að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið verður fyrir ráðstöfun til 31. október en eftir það verða sendir út greiðsluseðlar. Ef barnið ykkar er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna.

Thursday, October 15, 2009

Næstu dagar

Jæja drengir, flott æfing í kvöld og frábært að fá u.flokks strákana inn til þess að berja aðeins á ykkur. Vona að við náum að æfa svona amk. 2x í viku.

Langar svo að benda á nýjan link á síðunni til hliðar en þar getið þið séð leikjayfirlit allra flokka Vals í vetur. Þessi linkur var settur sérstaklega að beiðni Bensa;)

Varðandi framhaldið þá er það svona:
Fimmtudagur: Æfing kl. 20:00-21:40

Föstudagur: Lyftingaræfing kl. 16:00. Ég verð ekki á svæðinu og ykkur er í raun frjálst að mæta hvenær sem er á föstudeginum. Það er engu að síður skyldumæting!

Laugardagur: Æfing 16:10-17:40. Sjálfur verð ég á Egilsstöðum þannig að ég reyni að útvega þjálfara fyrir æfinguna.

Sunnudagur: Leikur gegn KR í DHL kl. 14:00. Mæting amk. klukkutíma fyrir leik. Ég verð ekki kominn heim frá Egilsstöðum en Yngvi ætlar að stjórna ykkur í þessum leik

Wednesday, October 14, 2009

Frábær sigur

Frábær sigur í kvöld. Við munum nýta okkur þennan leik til þess að byggja upp fyrir framtíðina.

"You can't have a better tomorrow if you're thinking about yesterday."

Nú er þessi leikur búinn og tími til þess að fókusa á næsta verkefni sem er KR á sunnudaginn kl. 14:00. Fram að þeim leik eru einungis þrjár æfingar og mikilvægt að allir mæti fókuseraðir og tilbúnir að leggja sig fram á æfingum. Það var mikið af jákvæðum hlutum í leiknum í kvöld en það voru líka fullt af hlutum sem við getum gert betur. Þessa hluti lögum við á æfingum.

Æfingin fyrir Blikaleikinn var mjög góð og við þurfum að halda áfram á sama skriði.

Sunday, October 11, 2009

Mánudagsæfing

Æfingin á morgun (mán. 12 okt.) verður kl. 20:25. Þannig að það verður engin lyftingaræfing.

Tuesday, October 6, 2009

Æfing miðvikudag

Æfingin á morgun, miðvikudag, verður bara lyftingaræfing. Engin æfing inni í sal. Mæting 17:30.Ég reyni að mæta á svæðið og þá höldum við smá fund áður en þið farið að lyfta!

Ég hvet ykkur svo til þess að mæta á leikinn hjá meistaraflokki kl. 20:00 og jafnvel að einhverjir ykkar aðstoði við ritaraborðið.

Brottför

Jæja, þá er það fyrsti leikurinn á tímabilinu.

Mæting í Valsheimilið kl. 15:45 og brottför verður kl. 16:00 stundvíslega.
Fargjald er 1500 krónur en við förum á bíl frá Hertz og verður Lalli driver í þessari ferð.

Þegar þetta er ritað þá reikna ég síður með að komast með vegna veikinda, ligg heima með hitta og pest. Ég mun þó útvega manni í minn stað á bekkinn.

Saturday, October 3, 2009

Videofundur

Videofundur verður á mánudaginn kl. 18:45 og svo æfing strax á eftir til kl. 21:40

Friday, October 2, 2009

Helgin

Á föstudag er lyftingaræfing kl. 16:00. Þið megið koma fyrr ef þið viljið.
Á laugardag er skotæfing fyrir þá sem eru ekki eru að spila með unglingaflokki. Ég verð ekki með ykkur á æfingunni en ég mun skilja eftir æfingaplan fyrir ykkur í afgreiðslunni.
Á mánudag er svo engin lyftingaræfing. Í stað þess munum við horfa á video af leiknum við Breiðablik og svo æfing strax á eftir. Ég mun tilkynna mætingu síðar.