Thursday, February 25, 2010

Æfing á laugardag

Æfinging á laugardaginn (27. feb) verður kl. 11:30

Svo eru hér smá upplýsingar varðandi fjáröflun sem ég er með í gangi fyrir yngri flokkana. Ykkur er frjálst að taka þátt í þessu ef þið hafið áhuga. Eazy money ching ching!

Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.

Eftirfarandi pakkar eru í boði:

Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700-3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000

Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.

Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).

Sunday, February 14, 2010

Plan fyrir vikuna (uppfært!!!!!)

Svona er planið fyrir vikuna:

Á miðikudag eða fimmtudag munum við halda videofund þar sem við horfum á leikinn gegn Grindavík. Læt ykkur vita betur þegar ég veit með aðstöðuna í Valsheimilinu.

Mánudagur: Æfing kl. 20:00. Gæti seinkað örlítið en ætti þó ekki að vera mikil seinkun.
Þriðjudagur: Æfing kl. 19:35-20:40. Einhverjir ykkar fara svo beint af æfingu yfir í leik hjá unglingaflokki í sal 3 kl. 20:30, hinir halda áfram á æfingu.
Miðvikudagur: Æfing kl. 17:30....ALLIR AÐ MÆTA ÞÓ SVO AÐ ÞIÐ SÉUÐ AÐ FARA Á ÁRSHÁTÍÐ.
Fimmtudagur: Videofundur kl. 18:45. Æfing kl. 20:00
Föstudagur: Frí
Laugardagur: Æfing kl. 10:15

Friday, February 12, 2010

......

Engar æfingar um helgina, næsta æfing á mánudaginn. Verið klárir á æfinguna kl. 20:00 þar sem að hún gæti byrjað eitthvað fyrr en vanalega.

Sunday, February 7, 2010

Vikan

Mánudagur: Æfing 19:00 í sal 3 (Einhver að láta Hjálmar vita, er búinn að tína númerinu hans).
Þri: leikur gegn Grindavík heima, mæting 19:30
Mið: FRÍ v. leiks hjá u.flokki
Fim: 20:00 gamla sal

Hvað helgina varðar þá kemur það betur í ljós í lok vikunnar.

Friday, February 5, 2010

Helgin

Mæta með 6.000 krónur í Valsheimilið á föstudag milli kl. 17:00 og 17:30

Æfing á laugardag 14:40 í gamla sal. Yngvi sér um æfinguna.

Brottför fyrir Ísafjörð kl. 12:15 á sunnudag. Mætið amk. hálftíma fyrir brottför og hafið meðferðis skilríki.

Thursday, February 4, 2010

Ísafjörður

Búið er að panta flugið til Ísafjarðar fyrir alla leikmenn 11.- og drengjaflokks. Heildarkostnaður er 6.000 krónur á mann.

Komið með pening annað hvort á æfingu í kvöld eða á föstudag kl. 17:30 í Valsheimilið.