Monday, November 29, 2010

Vikan

Minni ykkur á að borga í sektarsjóðinn í þessari viku.

Vikan verður þannig að allir æfingatímar standa nema á fimmtudaginn. Þá fellur niður æfing vegna handboltaleiks.

Það verður svo frí vikuna 6-12 desember en byrjum aftur æfingar eftir það og æfum eins og mögulegt er í jólafríinu.

Monday, November 22, 2010

Vikan

ATH: ég setti engar sektir í síðustu viku, hvorki mætingasektir né dagsektir. Þannig að síðasta vika var einskonar frívika. Reynið nú að ganga frá ykkar málum sem eigið það eftir!

Gerði smá breytingu á æfingatíma 11. flokks á þriðjudögum en þið eruð komnir aftur á gamla tímann (sjá betur til hliðar). Afsakið flakkið á þessu.

Mánudagur: Æfing 20:30-22:00 í sal 3
Þriðjudagur: Frí vegna leiks Vals-Breiðabliks í unglingaflokki
Miðvikudagur: Æfing 20:00-21:40 í gamla sal
Fimmtudagur: Frí vegna leiks Vals og Hauka í unglingaflokki
Föstudagur: Æfing 18:10-19:30 í gamla sal
Laugardagur: Æfing 14.40 í gamla sal. Síðasta æfing fyrir leik gegn FSu í bikarnum.
Mánudagur 29. nóv.: útileikur gegn FSu í bikarnum kl. 19:30. Mæting 17:30 í Valsheimilið.

Sunday, November 14, 2010

Vikan + Ritaraborð

Minni menn á að skrifa í komment í pósti hérna neðar á síðunni hversu marga leiki þeir hafa tekið á ritaraborði!

Vikan verður svona:

Mánudagur: 20:30 í sal 3 (drengjaflokkur). 11. flokkur í gamla sal kl. 20:00
Þriðjudagur: Leikur í Njarðvík hjá dr.flokki (mæting 18:15 í Valsheimilið). 11. flokkur á æfingu kl. 19:00 í sal 3.
Miðvikudagur: Æfing 20:30
Fimmtudagur: Æfing dr.flokki kl. 19:00. 11. flokkur kl. 17:30
Föstudagur: Æfing samkvæmt æfingatöflu
Næsta helgi (20-21 nóv) Frí.

Wednesday, November 10, 2010

Greiðslur í sektarsjóð

Fjölmargir eiga eftir að greiða í sektarsjóð fyrir október. Sektir standa svona:

Alfreð: 2900 krónur
Finnbogi: 4400 krónur
Jón Ingi. 900 krónur
Frikki: 4200 krónur
Eysteinn: 2300 krónur
Jón Kr.: 700 krónur

Aðrir hafa annað hvort greitt sektir eða hafa staðið sig 100% í mætingu.

Hvet ykkur til þess að greiða þetta í síðasta lagi á föstudag. Ef þið greiðið á fimmtudaginn þá stendur upphæðin í þessari tölu en hækkar um 100 krónur eftir hverja æfingu eftir það.

Þeir sem hafa safnað sektum fyrir nóvember eru Tómas (2000) og Högni (2000). Ekki eru komnar dagsektir á þá þar sem þeir eiga að greiða sektir á fyrstu æfingu í desember.

Það sem er alvarlegast við þetta er það að það er áberandi hvað eldri leikmenn flokksins eru að klikka á mætingum og greiðslum en það eru einmitt þeir leikmenn sem eiga að leiða flokkinn. Leikmenn 11. flokks hafa verið mun duglegri við mætingar á æfingar.

Saturday, November 6, 2010

Vikan

Æfingar verða svona í næstu viku!

Mánudagur: 11. flokkur mætir hjá 10 flokki kl. 20:00
Þriðjudagur: 11. flokkur mætir 19:00 með 10. flokki. Æfing 20:30 hjá dr.flokki.
Miðvikudagur: Engin æfing, leikur í u.flokki gegn Haukum heima.
Fimmtudagur: Æfing 20:30. Vill fá 11. flokk á æfingu kl. 19:00 með 10. flokki.
Föstudagur: Æfing 19:10. Frí hjá 11. flokki
Laugardagur: Æfing 13:00-14:30 hjá dr.flokki í gamla salnum.

Mót um næstu helgi hjá 11. flokki, spilað á heimavelli Fjölnis í Rimaskóla:

Laugardagur 13 nóv.
13:00 Valur-Stjarnan

Sunnudagur 14. nóv.
10:15 Valur-Ármann
12:45 Valur-Fjölnir b

Sektir

Mikið af ógreiddum sektum fyrir október. Klárið málið á næstu æfingu. Getið séð stöðuna hjá ykkur í skjalinu hér til hliðar á síðunni.

Endilega kommentið svo á hvaða fjölda leikja þið hafið verið á ritaraborði í póstinum hér að neðan.

Wednesday, November 3, 2010

Ritaraborð

Ég er að halda skráningu yfir það hvað þið hafið tekið marga leiki á ritaraborði í vetur og þá meðtalið meistaraflokksleiki.

Til þess að skráningin sé rétt þá megið þið endilega pósta í kommentum hér að neðan hvað þið hafið tekið marga leiki.

Monday, November 1, 2010

Vikan

ATH. breyttan æfingatíma 11. flokks karla!!!!

Mánudagur: Æfing kl. 20:00-21:40 í gamla sal
Þriðjudagur: Leikur gegn FSu í Valsheimilinu. Mæting kl. 19:30
Miðvikudagur: FRÍ!
Fimmtudagur: Æfing 20:30
Föstudagur: Æfing 19:10-20:40
Laugardagur: Leikur í Grindavík kl. 15:30. Mæting í Valsheimilinu kl. 13:45. Ég fer á bíl, get tekið 5-6 farþega, þurfum amk. 1 bíl í viðbót.