Svona er staðan á þeim sem eiga eftir að borga í febrúar og fer sektin hækkandi um 100 krónur á hverri æfingu. Mæli með því að þeir sem eiga ekki fyrir þessu fái foreldra, frænkur eða ömmur og afa til þess að spotta sig um nokkra þúsara svo þetta endi ekki í rugli.
Þessi sjóður var settur á til þess að menn myndu virða tíma annarra og sinn eigin og til þess að allir væru á sama bandi varðandi leik liðsins.
Hafði svosem hugsað mér að gera margt skemmtilegra á laugardagskvöldi en að fara yfir sektarsjóðinn ykkar en staðreyndin er sú að þetta er farið að taka mig hellings tíma og hellings auka vinnu. Ef þetta verður ekki greitt í næstu viku verða leikmenn sem skulda fyrir febrúar settir í æfinga- og keppnisbann. Þetta er fúlasta alvara.
Alfreð: 3.700
Arnar Óli: 6.700
Frikki: 8.500
Eysteinn: 3000
Knútur: 4.600
Örn: 3.100
Þeir sem eiga svo skuldir sem skella á í mars mánuði:
Bjössi: 500
Tómas: 500
Ath. að það hafa einhverjar fjarvistir og annað slíkt farið fram hjá mér þannig að þessar tölur eiga sennilega að vera hærri!
Saturday, February 19, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment